Ásta Ragnheiður bauð Katrínu í bolludagskaffi


Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags og tryggingamálaráðherra, bauð Katrínu Guðrúnu Tryggvadóttur ásamt fjölskyldu og þjálfara í bolludagskaffi í félags- og tryggingamálaráðuneytinu á mánudag, til að fagna frábærum árangri Katrínar í keppni í listhlaupi á skautum á alþjóðavetrarleikunum Special Olympics í Boise Idaho í Bandaríkjunum nýverið.

Eins og kunnugt er var árangur Katrínar á leikunum glæsilegur en hún lenti í 5. sæti í sínum flokki. Þá er þrautsegja Katrínar við æfingar ekki síður eftirtektarverð en hún hefur æft listhlaup á skautum undir leiðsögn Helgu Olsen í fjögur ár hjá skautafélaginu Birninum.

Ráðherra afhenti Katrínu Guðrúnu ljósmyndabók, óskaði henni hjartanlega til hamingju með þennan góða árangur og sagði að „Katrín hefði verið landi og þjóð til sóma og staðið vel undir því álagi sem óneitanlega fylgdi því að vera eini íslenski keppandinn á svona stórum íþróttaviðburði. Frammistaða Katrínar sýni hversu mikilvægt það sé að styðja við það frábæra starf sem unnið er hjá Íþróttasambandi fatlaðra.“

Á leikunum Special Olympics er skipt í hópa þannig að þátttakendur keppa við jafningja sína. Aðalmarkmiðið er að allir eigi jafna möguleika hvar sem þeir standa og þannig er byggð upp virðing fyrir öllum þátttakendum, hvar í flokki sem þeir standa.

Mynd: Vel fór á með Katrínu og Ástu Ragnheiði félags- og tryggingamálaráðherra.