Oscar Pistorius ætti að ná sér að fullu eftir bátsslys


Hinn 22 ára gamli hlaupagarpur frá Suður-Afríku, Oscar Pistorius, ætti að ná sér að fullu eftir að hafa gengist undir aðgerð á höfði og andliti, eftir að hann lenti í slysi í heimalandi sínu.

Pistorius sem er einn sigursælasti hlauparinn í flokki fatlaðra var í bátsferð með vini sínum nálægt Jóhannesarborg á laugardag á ánni Vaal þegar hann lenti í slysi en sögum ber ekki saman um hvernig slysið orsakaðist nákvæmlega. Hann gekkst svo undir aðgerð á sunnudag á spítala í Jóhannesarborg.

„Heilinn í honum starfar eðlilega eftir slysið,“ sagði Anchen Laubcher, læknirinn sem meðhöndlaði Pistorius eftir slysið en hann skaddaðist mest á höfði.

Lesa nánar um málið hjá MBL.IS: http://mbl.is/mm/sport/frettir/2009/02/23/hlaupagarpurinn_oscar_pistorius_aetti_ad_na_ser_ad_/

Mynd: Oscar Pistorius á spjalli við Adolf Inga Erlingsson íþróttafréttamann hjá RÚV á kynningarfundi Össurar í Peking 2008.