Anna Kristín íþróttakona Seltjarnarness annað árið í röð!


Sundkonan Anna Kristín Jensdóttir var þann 10. febrúar síðastliðinn útnefnd íþróttakona ársins á Seltjarnarnesi en þetta er annað árið í röð sem Anna verður fyrir valinu. Snorri Sigurðsson hlaupari úr röðum ófatlaðra var kjörinn íþróttamaður ársins.

Á heimasíðunni www.seltjarnarnes.is segir eftirfarandi um Önnu:

Anna Kristín Jensdóttir hefur æft sund hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík frá 8 ára aldri og hefur verið með yfir 90% æfingasókn frá upphafi. Hún hefur tekið hröðum framförum í sundíþróttinni og unnið til fjölda verðlauna bæði hérlendis og erlendis. Árið 2007 var viðburðaríkt og gott ár hjá Önnu og setti hún fjölda Íslandsmeta ásamt því að vinna sér inn Íslandsmeistaratitla. Þá má geta þess að Anna á eitt Norðurlandamet.

Á árinu 2008 bætti hún Íslandsmetið í 100 m bringusundi þrívegis og í 50 metra bringusundi tvívegis. Hún á nú Íslandsmetin í 100 m bringusundi í 25 metra braut og í 50 metra braut og í 50 metra bringusundi í 25 metra laug í sínum fötlunarflokki.

Árangur hennar í 100 metra bringusundi í hennar fötlunarflokki skipar henna sess meðal tuttugu og fimm bestu sundkappa heims. Anna er nú í úrvalshópi landsliðsnefndar vegna þátttöku í Ólympíuleikunum 2012. Anna Kristín hefur lagt afar hart að sér við æfingar og keppni auk þess að vera góð fyrirmynd ungra og upprennandi íþróttamanna.