Æfingabúðir ÍF í frjálsum 20.-21 febrúar


Æfingabúðir Íþróttasambands fatlaðra í frjálsum íþróttum fara fram á Laugarvatni dagana 20.-21. febrúar næstkomandi. Sex iðkendur frá fimm aðildarfélögum hafa verið valdir í búðirnar og eru þeir eftirfarandi:

Baldur Ævar Baldursson, Snerpa
Jón Oddur Halldórsson, Reynir Hellissandi
Jakob Gunnar Lárusson, Nes
Jósef W. Daníelsson, Nes
Ágúst Þór Guðnason, Gný
Ingeborg Eide Garðarsdóttir, FH

Íþróttasamband fatlaðra óskar viðeigandi félögum og íþróttamönnum til hamingju með að vera valdir í búðirnar.

Mynd: Baldur Ævar Baldursson frá Snerpu í langstökki á Ólympíumóti fatlaðra í Peking 2008.