Jóhann í 3.-4. sæti á Pepsimóti Víkings


Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson, NES, heldur áfram að gera það gott í innlendri keppni ófatlaðra en um helgina tók Jóhann þátt á Pepsimóti Víkings en það er keppni hjá ófötluðum.

Jóhann keppti í 1. flokki og hafnaði þar í 3.-4. sæti. Þá tók hann einnig þátt í keppni í meistaraflokki þar sem Jóhann hafði sigur á Daða Frey sem var sigurvegari á síðasta punktamóti Víkings. Jóhann æfir nú af kappi fyrir Opna ungverska mótið í borðtennis sem fram fer dagana 19.-.23 mars næstkomandi en um næstu helgi fer Jóhann á Malmö Open með ÍFR svo það er í mörg horn að líta hjá honum á næstunni.