Jakob Jóhann gestaþjálfari hjá bringusundsmönnum ÍFR


Sundgarpurinn Jakob Jóhann Sveinsson verður gestaþjálfari masterclass bringusundsmanna hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík í dag föstudaginn 6. janúar. Æfingin hefst kl. 16:00 í innilauginni í Laugardal en Jakob mun hefja kennslu sína með bringusundsmönnum ÍFR um kl. 17:00.

Jakob Jóhann er einn fremsti sundmaður þjóðarinnar og Íslandsmeistari og Ólympíufari í bringusundi. Erlingur Þ. Jóhannsson yfirþjálfari ÍFR í sundi sagði að það væri virkilega ánægjulegt að fá Jakob Jóhann á æfinguna.

,,Það er gaman að hann geri þetta fyrir okkur og veiti sundmönnum ÍFR innsýn í sínar æfingar,“ sagði Erlingur sem er einn reyndasti þjálfari fatlaðra sundmanna á Íslandi.

Mynd: Jakob Jóhann Sveinsson einn fremsti sundmaður þjóðarinnar.