Mætum öll á skautsýningu í Egilshöll kl. 18:15 laugardag 31. janúar


Katrín Guðrún Tryggvadóttir, mun keppa í Listhlaupi á skautum á Alþjóðaleikum Special Olympics sem fara fram í Boise iIdaho 7. - 13. febrúar 2009. Katrín Guðrún sem æfir hjá Skautafélaginu Birninum, mun sýna æfingar sínar á Þorramóti Bjarnarins sem fram fer dagana 30. - 31. janúar í Egilshöll.

Hún mun opna mótið á laugardagskvöldið kl. 18:15 með því að sýna skylduæfingar og frjálst programm.

Íþróttasamband Fatlaðra óskar Katrínu Guðrún til hamingju með þann heiður sem henni er sýndur og hvetur fólk til að mæta og sýna henni stuðning.