Jóhann í 2. sæti á punktamóti Víkings


Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson, NES, hafnaði í 2. sæti í 1. flokki á punktamóti Víkings sem fram fór í TBR-húsinu um síðastliðna helgi.

Jóhann var að keppa í flokki ófatlaðra þar sem hann mætti Vigni Kristmundssyni úr HK í úrslitum. Vignir sigraði Jóhann 3-0 (11-7, 11-7, 11-8). Vignir, sem er gamall Arnarmaður, hefur tekið upp spaðann að nýju og keppir nú fyrir HK. Jóhann er að hefja keppni að nýju eftir hlé, en hann tók sér frí þegar honum tókst ekki að komast á Ólympíuleika fatlaðra í Peking.