Ragney Líf íþróttamaður ársins 2008 í Ísafjarðarbæ


Sundkonan Ragney Líf Stefánsdóttir var útnefnd íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2008. Ragney Líf er 16 ára og hefur æft sund hjá Íþróttafélaginu Ívari í níu ár. Á síðasta ári keppti hún á þremur stórum mótum; Malmö-open í Svíþjóð, Íslandsmóti ÍF í 50 metra laug og Íslandsmóti ÍF í 25 metra laug. Á öllum mótunum stóð hún sig með prýði og vann m.a. til fjögurra verðlauna á Malmö-open, þar á meðal tvö gullverðlaun. Fimm verðlaun á Íslandsmótinu í 50 metra laug ,þar af tvö gull og eitt brons, og þrjú gullverðlaun á Íslandsmótinu í 25 metra laug. Samtals vann hún fimm Íslandsmeistaratitla á árinu 2008.

Þess má einnig geta að Ragney Líf keppti á Nýárssundmóti Í þann 3. janúar og var þriðja stigahæst á mótinu. Hún setti Íslandsmet í 50 m bringusundi, bætti sig í öllum greinum og komst inn í landliðsæfingarhóp Íþróttasambands fatlaðra. Ragney Líf stundar nám við Menntaskólann á Ísafirði og er á afreksbraut skólans.

Greinina í heild sinni má lesa á vefsíðu BB – www.bb.is
http://bb.is/?PageID=26&NewsID=127051

Mynd: Af www.bb.isRagney Líf ásamt foreldrum sínum Valdísi og Stefáni.