Katrín opnar Þorramót Bjarnarins


Skautadrottningin Katrín Guðrún Tryggvadóttir mun opna Þorramót Bjarnarins dagana 30.-31. janúar næstkomandi með því að sýna skautaæfingar sínar fyrir Special Olympics 2009.

Katrín er á leið til Idaho í Bandaríkjunum þar sem hún mun taka þátt í Alþjóða vetrarleikum Special Olympics. Æfingar sínar fyrir Bandaríkjaferðinni mun Katrín gera á laugardagskvöldinu kl. 18:15. Þjálfari Katrínar er Helga Olsen.