Danir gerðu góða ferð á RIG mótið


Reykjavík International Games fóru fram í Reykjavík um síðastliðna helgi þar sem fatlaðir tóku þátt í fyrsta sinn. Fatlaðir kepptu aðeins með í sundi en vonir standa til þess að keppt verði í fleiri íþróttagreinum í framtíðinni á þessu stóra og veglega móti. Af þessu tilefni bauð Íþróttasamband fatlaðra tveimur sterkum dönskum sundmönnum á mótið sem gerðu góða ferð á Frón.

Christian Bundgaard (S 11) var stigahæsti sundmaður mótsins með 846 stig fyrir 50m. bringusund á tímanum 36,67 sek. Þá varð Cecilie Christiansen (S 2) stigahæsta sundkona mótsins með 497 stig fyrir 50m. bringusund á tímanum 1.34,91 mín.

Pálmi Guðlaugsson (S 6) frá sunddeild Fjölnis gerði einnig góða ferð á mótið þegar hann setti þrjú Íslandsmet. Pálmi setti met í 50m. skriðsundi á tímanum 37,92 sek. Þá setti hann Íslandsmet í 50m. baksundi á tímanum 51,62 sek. og loks var þriðja met Pálma í 100m. baksundi þegar hann kom í mark á tímanum 1.51,99 mín.

Sjá öll úrslit mótsins

Myndir: Að ofan er Pálmi sem fór á kostum á mótinu og að neðan er danska sveitin sem skemmti sér konunglega í Íslandsförinni og fóru á kostum í lauginni.