Jón Margeir Sverrisson hlaut Sjómannabikarinn


Nýárssundmóti Íþróttasambands fatlaðra fyrir börn og unglinga árið 2009 var rétt í þessu að ljúka þar sem sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson hlaut Sjómannabikarinn fyrir besta afrek mótsins. Jón Margeir syndir fyrir Íþróttafélagið Ösp og vann besta afrekið í 50m. skriðsundi er hann kom í mark á tímanum 28.82 sek. og hlaut fyrir vikið 676 stig. Stigin eru reiknuð út frá heimsmeti sem gildir 1000 svo árangur Jóns er frábær og ljóst að hér er á ferðinni sterkur og efnilegur sundmaður.

Ragnar Ingi Magnússon átti næststigahæsta sund mótsins, einnig í 50 m. skriðsundi, er hann kom í mark á tímanum 29.47 sek. og hlaut fyrir vikið 632 stig. Ragney Líf Stefánsdóttir frá ÍVARI á Ísafirði hafnaði í 3. sæti en hún var líka í 50m. skriðsundi og kom í mark á tímanum 36.67 sek.

Halldór Guðbergsson formaður Öryrkjabandalags Íslands var heiðursgestur mótsins og afhenti Jóni Margeiri Sjómannabikarinn en þess má til gamans geta að Halldór var keppandi á fyrsta Nýárssundmóti ÍF sem fram fór árið 1984.

Nánar verður greint frá mótinu í máli og myndum á morgun, mánudag.

Mynd: Jón Margeir með sigurlaunin.