Rúmlega 200 manns frá 15 aðildarfélögum ÍF tóku þátt í Íslandsmótinu í
einliðaleik í boccia sem fram fór í Laugardalshöll. Sú hefð hefur skapast
að aðildarfélög ÍF eru framkvæmdaraðilar þessa Íslandsmóts en tilgangur þess er
m.a. að kynna starfsemi þeirra félaga sem standa að mótinu.
Íþróttafélagið
Ösp var framkvæmdaraðili að þessu sinni í samvinnu við Íþróttasamband
fatlaðra.
Nemendur frá Fjölbrautskólanum í Breiðholti aðstoðuðu við dómgæslu
og fjölmargir aðstoðuðu íþróttafélagið Ösp við framkvæmd mótsins. Lokahóf
var haldið í Fjörukránni í Hafnarfirði þar sem mikil stemming ríkti í
gærkvöldi. Skipulag og framkvæmd mótsins var íþróttafélaginu Ösp til
mikils sóma og Íþróttasamband Fatlaðra óskar félaginu til hamingju með glæsilegt
Íslandsmót.
Úrslit mótsins , myndir á www.123.is/if