Fengu Canon myndavélar að gjöf fyrir Kínaferðina
Nýherji hefur fært öllum íslenskum keppendunum,
sem halda á Ólympíumót fatlaðra í
Ólympíumót fatlaðra hefst 6. september í Kína.
Íslendingar eiga tvo fulltrúa í frjálsíþróttum, tvo í sundi og einn
lyftingamann.
”Við erum full tilhlökkunar til ferðarinnar og
keppninnar. En þrátt fyrir mikinn keppnisanda ætlum við einnig að njóta þess að
vera hluti af jafn stórum leikum og Ólympíuleikar fatlaðra eru og viljum taka
með okkur góðar minningar heim. Gjöfin frá Nýherja mun því án ef koma keppendum
í góðar þarfir því þeir munu eflaust taka myndir af hvort öðru, borginni og
keppninni eins og kostur er,” segir Jón Björn Ólafsson hjá Íþróttasambandi
fatlaðra.