Smáþjóðaleikar Special Olympics í boccia fara fram í Lichtenstein dagana 23 – 26 apríl
Boccia er ein vinsælsta grein hjá aðildarfélögum ÍF og þar hefur félagslegi þátturinn skorað hátt enda mikil vinátta og tengsl myndast milli bocciaspilara hjá félögunum.
Keppendur koma frá íþróttafélaginu NES Suðurnesjum, Eik Akureyri og Akri Akureyri.
Sylvía Guðmundsdóttir formaður íþróttafélagsins Ægis Vestmannaeyjum er fararstjóri en það er stutt stórra verkefna á milli hjá henni. Hún stýrði glæsilegu Íslandsmóti í boccia sem fór fram í Vestmannaeyjum sl. helgi. Þjálfarar eru Sigurpáll Árnason þjálfari hjá NES, Fylkir Þór Guðmundsson, þjálfari hjá Eik og Sigríður Þórunn Jósepsdóttir þjálfari hjá Akri.
Keppendur eru frá NES; Ari Ægisson Vilhjálmur Þór Jónsson Erla Sif Kristinsdóttir og Lena Kristín Hermannsdóttir. Frá Eik; Sigfús Jóhannesson Ingvar Axel Gunnarsson Kristófer Fannar Sigmarsson og Sunna Jónsdóttir. Frá Akri; Védís Elva Þorsteinsdóttir Rósa Ösp Traustadóttir Elísabet Þöll Hrafnsdóttir og Stefán Thorarensen
Á myndinni má sjá íslenska hópinn en keppendur, þjálfarar og fararstjóri fá góðar kveðjur og óskir um gott gengi á leikunum










