Fjölbreytt verkefni framundan hjá Special Olympics á Íslandi


Það er margt að gerast í starfi Special Olympics á Íslandi næstu mánuði. Aðildarfélög ÍF eru í vaxandi mæli að nýta tilboð um verkefni erlendis og ný tækifæri eru að skapast. Ný verkefni innanlands eru Íslandsleikar Special Olympics í badminton í samstarfi við badmintonfélag Hafnarfjarðar og Badmintonsambandið. Fyrsta íslenska körfuboltalið Special Olympics á Íslandi fer til keppni erlendis í júní og fyrsti íslenski keppandinn í júdó stefnir á Special Olympics leika í Svíþjóðí september.  Fjölbreytt verkefni byggja á tilboðum sem aðildarfélög ÍF og aðrir geta nýtt í gegnum aðild Íslands að Special Olympics samtökunum. Það er sérlega ánægjulegt að fleiri og fleiri félög eru að nýta þessi tilboð fyrir iðkendur á öllum aldri. 

Innanlands verða fyrstu Íslandsleikar Special Olympics í badminton 26. apríl,  Íslandsleikar Special Olympics í keilu unified verða 10 apríl og hefðbundinni keilukeppni  11 maí og Islandsleikar Special Olympics í listhlaupi á skautum og skautahlaupi verða 31. maí. Sérstakur ráðgjafafundur vegna YAP verkefnisins verður 15. apríl og ýmis fleiri verkefni eru í ferli. Erlendis verða Smáþjóðaleikar Special Olympics í boccia í apríl, Special Olympics Festival í Danmörku í lok maí og Special Olympics 3x3 FIBA open í júní þar sem íslenskt lið keppir í fyrsta skipti.  Ráðstefna Special Oympics fyrir júdóþjálfara verður í Poznan, Póllandi í júní og í byrjun september halda Svíar í fyrsta skipti  fjölgreinaleika Special Olympics . Þar mun Ísland eiga í fyrsta skipti keppanda í júdó. 

Fjölbreytileikinn er því mikill í starfi Special Olympics á Íslandi næstu mánuðina. Það sem einkennir þátttöku er að allir geta verið með, sama hvert getustig er í íþróttagreininni. Skilgreining þátttöku er ekki lengur ,,Intellectural disabiltiy" eða þroskahömlun. Nú er skilgreining ,,Learning disability" sem hefur opnað dyrna fyrir stóran hóp iðkenda og sífellt fleiri taka þátt í ,unified" greinum þar sem fatlaðir og ófatlaðir keppa saman í liðum..  

 

Mynd; LIðsmenn og þjálfarar frá Special Olympics liði Hauka, sem mæta á FIBA Open í júní