Skráning er hafin í Sumarbúðir ÍF 2026


Hinar vinsælu sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra verða að venju haldnar á Laugarvatni í sumar. Boðið verður upp á tvö viku námskeið; hið fyrra fer fram 19.–26. júní og 26. júní–3. júlí. Einnig er hægt að sækja um báðar vikurnar.

Í ár fagna sumarbúðirnar 40 ára afmæli, svo þátttakendur mega búast við skemmtilegum og óvæntum uppákomum í tilefni tímamótanna.

  • Verð fyrir vikudvöl er kr. 125.000
  • Verð fyrir tveggja vikna dvöl er kr. 242.000.

Umsóknarfrestur er til 3. apríl nk. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér

Hlökkum til að sjá ykkur á Laugarvatni í sumar!