Hlakka til þessa skemmtilega dags


Íþróttafréttakonan Kristjana Arnarsdóttir verður viðburðastjóri á Paralympic-daginn 2022. Þessi stóri og skemmtilegi kynningardagur á íþróttastarfsemi fatlaðra á Íslandi fer fram laugardaginn 3. desember í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal frá kl. 13.00-15.00


„Það er mikill heiður fyrir mig að fá að taka þátt í svona skemmtilegu verkefni með Íþróttasambandi fatlaðra. Ég fór til Tokyo sumarið 2021 fyrir hönd RÚV og fjallaði þar um árangur okkar Íslendinga á Paralympics. Ég get með sanni sagt að þetta hafi verið skemmtilegasta vinnuferðin mín hingað til,“ sagði Kristjana sællar minningar en umfjöllun RÚV um leikana var einstaklega öflug og skemmtileg.


„Það var virkilega gaman að fá að vera í kringum íslenska hópinn og sjá um leið öll þau sem höfðu náð því markmiði að keppa á stærsta sviðinu. Íþróttir fatlaðra eru í stórsókn og fjölbreytnin alltaf að verða meiri. Við þurfum að halda áfram að styðja við öll þau sem vilja æfa íþróttir á Íslandi og ég hlakka til þessa skemmtilega dags.“


Á Paralympic-daginn gefst gestum tækifæri á því að prófa hinar ýmsu íþróttir, jafnvel skora Kristjönu á hólm - ekki láta þig vanta!

Viðburður á Facebook