Íþróttaskóli ÍFR að hefjast. Öll börn eiga að fá tækifæri til íþróttastarfs


Íþróttaskóli ÍFR hófst laugardaginn 16. okt. 2021 í íþróttahúsi ÍFR Hátúni 14. Ekkert gjald er fyrir þátttöku í Íþróttaskóla ÍFR
Kennt verður á laugardögum frá kl.11.00 til 11.50 og námskeiðstími er 16. okt. til 11. des.
Vinsamlega skráið þátttakendur með tölvupósti til ifr@ifr.is
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram; Nafn barns, aldur, fötlun og nafn aðstandanda.
Stjórnendur íþróttaskóla ÍFR eru:
Einar Hróbjartur Jónsson íþróttakennari
Ágústa Ósk Einars Sandholt íþróttakennari