ÍM50 frestað um óákveðinn tíma


Íslandsmót SSÍ og ÍF í 50m laug sem fara átti fram dagana 9.-11. apríl næstkomandi hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ástæða frestunar er eins og flestum ætti að vera kunnugt vegna nýrrar reglugerðar yfirvalda um sóttvarnarráðstafanir.


Í gærkvöldi kom erindi frá SSÍ þar sem skýrt var tekið fram að ÍM50 gæti ekki farið fram helgina 9.-11. apríl og því væri mótinu frestað um óákveðinn tíma. Reynt verður í dag, um helgina eða í byrjun næstu viku að ákveða nýja dagsetningu fyrir mótið.