Neyðarástand hafið í Tokyo


Föstudaginn 8. janúar tilkynntu yfirvöld í Tokyo, Japan, um að neyðarástand væri komið á í borginni ásamt fleiri svæðum í Japan. Síðastliðinn föstudag voru 2392 ný tilfelli tilgreind í borginni.


Búist er við því að neyðarástandið í borginni sem og í Kanagawa, Saitama og Chiba muni vara allt til 7. febrúar næstomandi. Fólk á þessum svæðum verður beðið um að halda sig heima eftir kl. 20.00 á kvöldin og veitingastaðir, krár og kaffihús sem selja áfengi verða lokuð á meðan neyðarástandinu stendur.


Líkamsræktarstöðvar, járnvöruverslanir og afþreyingar- og menningarstaðir á borð við leikhús munu verða opin með takmörkunum og skólar verða áfram opnir.


Þær ráðstafanir sem verða við lýði í neyðarástandinu þykja vægari nú en þær sem voru uppi á teningnum 7. apríl 2020 þegar þáverandi forsætisráðherra Shinzo Abe var við stjórnartaumana. Tóku þær gildi tveimur vikum eftir að Ólympíuleikunum og Paralympics hafði verið slegið á frest. Gagnrýnisraddir hafa látið að því kveða að núverandi forsætisráðherra, Yoshihide Suga hafi dregið það of lengi að lýsa yfir neyðarástandi.


Ólympíuleikarnir 2021 fara fram 23. júlí til 8. ágúst og Paralympics fylgja venju samkvæmt þar í kjölfarið og eru á dagskrá 24. ágúst til 5. september. Til þessa hefur verið rætt um möguleikann á að leikarnir fari fram í svokallaðri „búbblu" eins og víða hefur orðið með íþróttir á heimsvísu og hefur Richard Pound meðlimur í stjórn IOC lagt til að íþróttafólk verði sett í forgang í bólusetningu gegn COVID-19 til þess að tryggja að leikarnir geti farið fram með raunhæfum hætti.


Eins og sakir standa hafa því IOC, IPC og heimamenn í Japan haldið því staðfastlega á lofti að af leikunum geti orðið og vinna því þjóðlönd skv. því að undirbúningi við þátttöku í leikunum.