Hilmar Snær fyrstur Íslendinga til að vinna Evrópumótaröðina


Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson frá Skíðadeild Víkings varð í dag fyrstur Íslendinga til þess að vinna sigur á Evrópumótaröð IPC í alpagreinum. Hilmar hafði sigur í svigkeppni dagsins og að henni lokinn var ljóst að ekki yrði keppt í stórsvigi á morgun vegna aðstæðna. Þar af leiðandi er Hilmar sigurvegari heildarstigakeppninnar á Evrópumótaröðinni með gull í svigi og silfur í stórsvigi. Sannarlega magnaður árangur hjá Hilmari sem hefur síðustu ár klifrað hratt upp metorðastigann í alpagreinum og er nú á meðal allra fremstu alpagreinamanna fatlaðra í heiminum um þessar mundir.


Hilmar var ekki einn um að rita nýjan kafla í íþróttasögu okkar Íslendinga í dag því yfirdómari keppninnar í dag var þjálfari Hilmars, Þórður Georg Hjörleifsson en þetta var í fyrsta sinn sem mótshluta Alþjóðlegs móts á vegum IPC er í höndum Íslendings. Hilmar og Þórður hafa starfað saman núna í liðlega áratug og eru að uppskera ríkulega af allri erfiðisvinnunni.


Eftir fyrri ferðina í dag var Hilmar í 2. sæti á tímanum 47,30 sek. og Austurríkismaðurinn Thomas Grochar var í forystunni á tímanum 46,56 sek. Hilmar kom svo í mark á 51,47 sek. í annarri ferðinni og keppinautur hans Thomas var að skíða vel en í blálok brautarinnar fipaðist hann og missti hlið og var því dæmdur úr leik og sigur Hilmars því í höfn.

Myndir/ Jón Björn