Ísland sendir 3 fulltrúa á Youth Summitt 2020, leiðtogaráðstefnu ungs fólks


Jenni Hakkinen frá Special Olympics í Evrópu hélt kynningu á Unified Sport, Unified School og Youth Summitt mánudaginn 25. nóvember þar sem hún sagði frá helstu verkefnum og kynnti ,,Unified" hugmyndafræðina. Á fundinum voru auk fulltrúa ÍF og Special Olympics á Íslandi, iðkendur, þjálfarar  og sérgreinastjórar Special Olympics á Íslandi.  Fulltrúar LETR á Íslandi stóðu með kyndil Special Olympics við útidyr ISI og tóku á móti fundargestum. Jenni var mjög ánægð með fundinn og þær umræður sem fóru þar fram og hrósaði liðsmönnum Special Olympics á Íslandi en þar standa margir vaktina og aðstoða skrifstofu ÍF að fylgja verkefnum eftir. Það hefur vakið athygli hve margir þjálfarar innan ÍF og Special Olympics á Íslandi eru menntaðir íþróttafræðingar eða með mikla reynslu og fagkunnáttu á sviði þjálfunar en sú staða er alls ekki algeng hvað varðar iðkendur Special Olympics á heimsvísu. Þessi þáttur er gífurlega mikilvægur en það er einnig mikilvægt að fá liðsmenn til aðstoðar sem hafa sjálfir verið keppendur og á fundinum voru iðkendur sem jafnframt aðstoða við þjálfun hjá sínu félagi. 

Jenni hélt einnig sérfund með fulltrúum Íslands sem munu taka þátt í ,, Youth Summitt" 2020 sem er leiðtogaráðstefna ungs fólks. 2 félagar frá Bolungarvík, fatlaður og ófatlaður  munu taka þar þátt en þeir kepptu í badminton ,,unified" á alþjóðaleikum Special Olympics í Los Angeles 2015. Þetta eru félagarnir  Guðmundur Kristinn Jónasson og Ómar Karvel Guðmundsson og aðstoðarmaður verður Jónas Sigursteinsson

Hún heimsótti einnig HSK mót í boccia sem haldið var af Selfossi og þar var íþróttanefnd fatlaðra hjá HSK sem skipulagði mótið þar sem fulltrúar Suðra og Gnýs kepptu í blönduðum liðum og mikil stemming ríkti á staðnum