Hulda kastaði 9,61 meter: Ísland lýkur þátttöku á HM


Þátttöku Íslands á heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum er lokið en nú í kvöld var kúluvarparinn Hulda Sigurjónsdóttir að taka þátt í kúluvarpi F20 kvenna. Hulda kastaði lengst 9,61 meter en að þessu sinni dugði það ekki til að ná í inn í átta manna úrslit.


Fyrsta kast Huldu í kvöld var 9,40 metrar og annað kastið 9,61 meter en þriðja kastið reyndist ógilt. Hulda hefði þurft 11 metra kast til að komast inn í úrslitin en hún var núna að ljúka sínu fyrsta heimsmeistaramóti.


Úrslit


Mynd/ Jón Björn - Hulda í kasthringnum í Dubai í kvöld.