Bergrún heimsmeistari ungmenna í langstökki


Heimsmeistaramót ungmenna í frjálsum (U20 og U17 ) fór fram í Nottwil í Sviss um Verslunarmannahelgina. Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, ÍR, hafði sigur í tveimur af fjórum greinum sem hún keppti í á mótinu en Bergrún keppir í flokki T/F 37 (hreyfihamlaðir). Bergrún varð heimsmeistari í langstökki með stökki upp á 4,12 metra og sigraði í spjótkasti í sínum flokki er hún kastaði spjótinu 23,08 metra. Spjótið var ekki verðlaunagrein á mótinu þar sem aðeins tveir keppendur voru skráðir til leiks. Glæsilegur árangur hjá Bergrúnu sem var einnig í 4. sæti í 100m hlaupi og 5. sæti í 200m hlaupi.


Erlingur Ísar Viðarsson frá FH átti svo bætingu í 100m hlaupi í flokki T37 er hann kom í mark á tímanum 14,21 sek.


Úrslit íslensku keppendanna í Nottwil:


Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir U20
100m hlaup: 4. sæti á tímanum 14,99 sek.
200m hlaup: 5. sæti á tímanum 32,30 sek.
langstökk: 1. sæti, lengsta stökk 4,12 m.
spjótkast: 1. sæti, lengsta kast 23,08 m.


Erlingur Ísar Viðarsson U20
100m hlaup: 18. sæti á tímanum 14,21 sek. (Persónuleg bæting upp á 0,47 sek).
200m hlaup: 20. sæti á tímanum 29,81 sek.
langstökk: 7. sæti, lengsta stökk 3,86 m.


Hafliði Hafþórsson U17
Keppti ekki á mótinu en gekkst í gegnum flokkun á vegum Alþjóða Ólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC).


Mynd/ Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir á verðlaunapalli að fagna heimsmeistaratitli sínum í langstökki T37 í U20 keppni.