Hilmar fyrstur Íslendinga með sigur í heimsbikarnum!


Hilmar Snær Örvarsson varð í dag fyrstur Íslendinga til þess að vinna sigur á heimsbikarmótaröð IPC í alpagreinum! Hilmar er staddur í Zagreb þar sem heimsbikarmótið í svigi fer fram. Hilmar var annar eftir fyrri ferðina í dag en glæsileg frammistaða í seinni ferð dagsins skilaði honum sigri!


Mótið var í beinni útsendingu hjá Alþjóða Ólympíuhreyfingu fatlaðra (IPC) og hér á 42. mínútu má sjá síðari keppnisferð Hilmars í dag. Á eftir tekur Hilmar við sigurlaununum en fögnuðurinn má ekki standa of lengi því annar keppnisdagur hefst strax í fyrramálið og þá er það annar keppnisdagur í svigi á heimsbikarmótaröðinni.


Sannarlega glæsilegur árangur og þegar ifsport.is ræddi við Þórð Georg Hjörleifsson þjálfara Hilmars kvaðst hann hæstánægður með árangur dagsins. Þórður sagði brautina hafa verið örlítið breytta á milli fyrstu og annarar ferðar og að beygjurnar hafi verið fleiri sem væri ein helsta skýringin á að skíðamennirnir voru ekki að bæta tíma sína úr fyrri ferð (það átti almennt við um alla keppendur).


Til hamingju Hilmar, Þórður og skíðadeild Víkings!


Mynd úr útsendingu IPC/ Hilmar í Zagreb í dag