Jón Margeir íþróttakarl Kópavogs 2015



Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson var á dögunum útnendur íþróttakarl Kópavogs fyrir árið 2015. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Íþróttahúsi  Smárans. Í umsögn Kópavogsbæjar um árangur Jóns á árinu 2015 segir:

Jón Margeir Sverrisson
Jón Margeir náði frábærum árangri á liðnu ári. Hann varð Íslands- og bikarmeistari í fjölda greina auk þess að setja 7 ný Íslandsmet. Hann var í hörkuformi á opna þýska meistaramótinu um miðjan apríl þar sem hann vann til gullverðlauna í 200 og 400 metra skriðsundi og setti um leið tvö ný heimsmet. Á Heimsmeistaramótinu í Glasgow vann Jón Margeir til silfurverðlauna í 200 metra skriðsundi. Í lok ársins keppti hann svo á sterku móti í Sao Palo í Brasilíu þar sem hann vann til þriggja gullverðlauna. Jón Margeir er búin að tryggja sér þátttöku á Ólympíuleikum fatlaðra í Brasilíu 2016 og undirbýr sig nú af kappi fyrir þá keppni.

Nánar um málið á heimasíðu Kópavogsbæjar

Mynd/ Kopavogur.is