Íþróttaskóli ÍFR


Íþróttaskóli ÍFR hefst laugardaginn 16. jan. 2016  í íþróttahúsi ÍFR Hátúni 14. Kennt verður á laugardögum frá kl.11.00 til 11.50. Lögð er áhersla á þátttöku barna með hreyfihömlun á aldrinum 4 -10 ára.
        
Námskeiðstími:  16. jan. til 19 mars.
        
Vinsamlega skráið þátttakendur með tölvupósti til ifr@ifr.is
Við skráningu þarf  eftirfarandi að koma fram.
Nafn barns. 
Aldur.
Fötlun.
Nafn foreldra.

Í skólanum verður lögð áhersla á eftirtalin atriði:
Samverustund: Segja nafnið sitt, uppáhalds lit, hvað var borðað í morgunmat, uppáhalds teiknimynd ofl.
Upphitun.
Hugrænar þjálfun: Þrautir í bland við líkamlegar æfingar, myndaspil, teningaleikir, púsluspil ofl.
Hefðbundnir leikir: Eitur í flösku, stórfiskaleikur, stórt skip lítið skip, skotbolti, dimmalimm, frost, ofl.
leikjabrautir/stöðvar/stuttar íþróttakynningar.
Teygjur: Liðkandi æfingar og slökun.

Íþróttaskóli ÍFR er tilraunaverkefni og verður ekkert gjald tekið fyrir þátttöku meðan á tilrauninni stendur.

Stjórnendur íþróttaskóla ÍFR eru:
Einar Hróbjartur Jónsson íþróttakennari
Ágústa Ósk Einars Sandholt íþróttakennari