Þrír á Pre Games í Austurríki


                          
Alþjóðavetrarleikar Special Olympics fara fram í  Austurríki 2017. Það hefur skapast sú hefð að ári fyrir alþjóðaleika Special Olympics eru haldnir undirbúningsleikar (Pre Games) þar sem nokkrir keppendur frá völdum löndum fá tækifæri til að taka þátt.

Dagana 10. – 15. janúar 2016 verða Pre Games í Austurík og Special Olympics á Íslandi fékk þar kvóta fyrir 3 keppendur í listhlaupi á skautum og eftirtaldir keppendur hafa verið valdir til ferðarinnar;  Ásdís Ásgeirsdóttir, Stefán Páll Skarphéðinsson og Védís Harðardóttir.  Þau æfa öll hjá skautadeild Aspar. Með keppendum fara Helga Olsen og Sólveig Dröfn, skautaþjálfarar hjá skautadeild Aspar.  Opnunarhátíð verður í Schladming en einnig er keppt í Ramsau og Graz þar sem listhlaup á skautum fer fram.

Á leikunum verða 1000 keppendur frá 23 löndum og alls er keppt í  9 greinum.  Listhlaup á skautum fer fram í Graz en keppni fer einnig fram í Shladming og Ramsau.   Sjá nánar  www.austria2017.org