Kolfinna fyrsti þátttakandinn á Evrópuleikum ungmenna



Íslendingar tóku þátt í Evrópuleikum fatlaðra ungmenna sem fram fóru í Varazdi í Króatíu dagana 16.-19. júlí á síðasta ári. Um var að ræða samstarfsverkefni BTÍ og ÍF.

Þáttakendur í mótinu voru Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir keppandi og faðir hennar Bjarni Þ. Bjarnason sem fór sem fararstjóri. Þetta var í annað sinn sem Evrópuleikar fatlaðra ungmenna fara fram og í fyrsta sinn sem Ísland á fulltrúa á mótinu.

Við mótið hlaut Kolfinna í fyrsta sinn alþjóðlega flokkun og niðurstaðan að hún keppi í flokki tíu en flokkunarferlið var m.a. eitt af aðalmarkmiðum ferðarinnar.

Kolfinna hóf keppni gegn hinni Rússnesku Daríu Saratovu en hún var hæst „rönkuð“ á mótinu og er nr. 15 á heimslista í klassa 10 þrátt fyrir ágæta spretti tapaði Kolfinna 3-0. Næsti leikur var gegn Joana Tepela frá Rúmeniu, sem er nr. 22 á heimslista klassa 10 og nr. 2 í þessum aldursflokki í Evrópu.
Þar sýndi Kolfinna góðan leik og hlaut lof þeirra sem fylgdust með en hún tapaði 3-1 og hefði með smáheppni alveg getað unnið þar sem allar loturnar voru tæpar en mjög skýr og greinileg batamerki á hennar leik.

Mynd/ Frá borðtenniskeppninni í Króatíu.