Kjörinu lýst í kvöld - Helgi einn af tíu efstu



Í kvöld fer fram kjörið á íþróttamanni ársins 2015 en einn íþróttamaður úr röðum fatlaðra komst inn á topp tíu lista Samtaka íþróttafréttamanna þetta árið en það er frjálsíþróttamaðurinn Helgi Sveinsson úr Ármanni.

Helgi var fyrr í desembermánuði útnefndur íþróttamaður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra en hann vann til bronsverðlauna á heimsmeistaramóti fatlaðra í spjótkasti sem fram fór í Doha í Katar. Helgi þríbætti heimsmetið í greininni á árinu.

Hér eru þeir sem koma til greina í kvöld sem íþróttamaður ársins sem og lið ársins og þjálfari ársins:


Íþróttamaður ársins

Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir

Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna

Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund

Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingar

Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleikur

Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna

Helgi Sveinsson, íþróttir fatlaðra (frjálsar/spjótkast)

Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund

Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleikur

Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna

Lið ársins

A-landslið karla í knattspyrnu

A-landslið karla í körfubolta

Kvennalið Stjörnunnar í hópfimleikum

Þjálfari ársins

Alfreð Gíslason

Heimir Hallgrímsson

Þórir Hergeirsson