Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga 2016



Sunnudaginn 3. janúar 2016 fer Nýárssundmót Íþróttasambands fatlaðra fram í Laugardalslaug. Keppt verður sem fyrr í 25m. laug.
 
Upphitun hefst kl. 14:00 þar sem Skólahjómsveit Kópavogs leikur á meðan upphitun stendur. Keppni hefst kl. 15:00.
 
Skráning fer fram á thor@lsretail.com með cc á if@ifsport.is en skráningum skal skila eigi síðar en í hádeginu 18. desember næstkomandi.
Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Þá sem vanhagar um skráningargögn geta haft samband á if@ifsport.is
 
Greinaröð Nýárssundmóts ÍF skv. sundreglum ÍF
 
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

1. grein 50 m baksund kk
2. grein 50 m baksund kvk
3. grein 50 m bringusund kk
4. grein 50 m bringusund kvk
5. grein 25 m frjáls aðferð kk
6. grein 25 m frjáls aðferð kvk
7. grein 50 m frjáls aðferð kk
8. grein 50 m frjáls aðferð kvk
9. grein 50 m flugsund kk
10. gein 50 m flugsund kvk