Jón með þrjú gull í Brasilíu



Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson er nýkominn heim frá Sao Paulo í Brasilíu ásamt Ragnari Friðbjarnarsyni þjálfara sínum en þar voru þeir félagar við keppni á Caixa Loterias mótinu sem fram fór dagana 6.-8. nóvember.

Jón Margeir kom heim með þrenn gullverðlaun en hann hafði sigur í 100m bringusundi á tímanum 1:14,14 mín. og sigur í 200m fjórsundi á 2:22,67 mín. Í 200m skriðsundi þar sem Jón er næstefstur á heimslista vann hann einnig til gullverðlauna á tímanum 2:02,89 mín. sem er nokkuð fjarri hans besta tíma.

Mynd/ RF: Jón með gullverðlaunin í Sao Paulo