Góðir gestir frá Rúmeníu í heimsókn Íslandi



Vikuna 20. – 25. október voru staddir á landinu góðir gestir frá Rúmeníu. Þetta eru þrír fulltrúar frá Special Olympics í Rúmeníu, Roxana Ossian, Corina Radu, Viorel Mocanu  og 3 prófessorar frá Háskólum í Búkarest og Targovista, Aura Boda, Gabriel Popescu og Bianca Chera-Ferrario.

Special Olympics á Íslandi hóf samstarf við Special Olympics í Rúmeníu í janúar 2015 þegar  fulltrúar Íslands fóru til Rúmeníu til að kynna sér verkefnið YAP – Young Athlete Program. Verkefnið er alþjóðaverkefni sem sett var á fót af Special Olympics International  með það að markmiði að efla  hreyfingu ungra barna með sérþarfir. 

Hópurinn heimsótti  ungbarna og heilsuleikskóla og háskóla, auk þess fylgdist hann með sundkennslu barna í Klettaskóla og íþróttaæfingum. Samstarf háskólakennara við Special Olympics í Rúmeníu hefur m.a. byggst á þjálfun barna með sérþarfir þar sem aðgangur er ókeypis að opnum tímum í húsnæði  skólanna og nemendur aðstoða  kennara sína í sjálfboðavinnu. Gestirnir voru með innlegg um verkefnið á ráðstefnu Special Olympics, laugardaginn 24. október en ráðstefnan tókst einkar vel til og vill Special Olympics á Íslandi þakka öllum þeim er mættu.

Mynd 1; Hópurinn á æfingu hjá skautadeild Aspar í skautahöllinni
Mynd 2;  Gabriel Popescu  leiðbeinir  ungum fimleikadreng í Gerplu en Gabriel keppti  á Ólympíuleikum  og er margreyndur þjálfari  og alþjóðadómari  í fimleikum.