NM hefst í Bergen í dag



Norðurlandamót fatlaðra í sundi hefst í Bergen í Noregi í dag. Ísland valdi 11 keppendur til þátttöku í mótinu en Kolbrún Alda Stefánsdóttir forfallaðist á síðustu stundu vegna meiðsla og því eru 10 íslenskir sundmenn mættir ytra.

Hægt verður að fylgjast með úrslitum mótsins í beinni úrslitaþjónustu þeirra Norðmanna hér.

Þá er hópurinn með stjórn á Snapchat-reikningi ÍF og sýnir frá ævintýrum sínum ytra á: ifsport

Sundhópur Íslands á NM í Noregi

Aníta Ósk Hrafnsdóttir                   Breiðablik/ Fjörður
Róbert Ísak Jónsson                        Fjörður
Sandra Sif Gunnarsdóttir               Fjölnir
Thelma Björg Björnsdóttir             ÍFR
Sonja Sigurðardóttir                        ÍFR
Guðmundur Hákon Hermannsson KR
Marinó Ingi Adolfsson                    ÍFR
Már Gunnarsson                             Nes/ÍRB
Róbert Reynisson                             Nes/ÍRB
Hjörtur Már Ingvarsson                 Fjörður

Með hópnum ytra eru landsliðsþjálfararnir Kristín Guðmundsdóttir og Ingi Þór Einarsson og Þór Jónsson formaður sundnefndar ÍF sér um fararstjórn.

Mynd/ Hjörtur Már Ingvarsson, Fjörður, er einn þeirra 10 sundmanna sem keppa fyrir Íslands hönd á NM í Bergen.