HM í Doha í beinni á netinu



Alþjóðaólympíuhreyfing fatlaðra, IPC, mun sýna í beinni á netinu frá öllu heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum sem fram fer í Doha í Katar dagana 21.-31. október næstkomandi.

Um 1400 íþróttamenn frá 100 löndum munu leiða saman hesta sína á stærsta frjálsíþróttamótinu fyrir Paralympics í Ríó 2016.

Lýsing mótsins verður á ensku en hægt verður að nálgast beinar útsendingar á netinu á www.doha2015.org

Ísland sendir tvo fulltrúa á mótið en það eru þeir Helgi Sveinsson, Ármann (spjótkast) og Arnar Helgi Lárusson, UMFN (hjólastólakappakstur).

Myndband fyrir HM í Doha