Alþjóðasumarleikar Special Olympics í LA 25. júlí – 3. ágsúst 2015



Opnunarhátíðin hefst á eftir!
Alþjóðaleikar fyrir fólk með þroskahömlun - þar sem allir eru sigurvegarar


Opnunarhátið Alþjóðasumarleika Special Olympics fer fram á Los Angeles Coliceum leikvanginum sem í gegnum tíðina hefur hýst marga stóðviðburði í borginni. Hátíðin hefst kl. 17 að staðartíma á eftir eða á miðnætti að íslenskum tíma.

Alþjóðaleikar Special Olympics eru haldnir fjórða hvert ár. Árið 2003 fóru leikarnir í fyrsta skipti fram utan Bandaríkjanna en þá fóru þeir fram í Írlandi, árið 2007 í Kína og árið 2011 Aþenu í Grikklandi.
Alþjóðasamtök Special Olympics hafa náð gífurlegri útbreiðslu og nú eru um fjórar milljónir iðkenda um heim allan. Á leikunum í Los Angeles verða 7000 keppendur frá 177 þjóðum, 3.500 starfsmenn íþróttagreina auk 30.000 sjálfboðaliða, aðstandenda, gesta, fjölmiðlafulltrúa og áhorfenda. Keppt er í 25 íþróttagreinum og taka Íslendingar þátt í níu þeirra.

Á Special Olympics leikum er þátttakan aðalatriðið, allir keppa við jafningja og allir eiga sömu möguleika á verðlaunum. Hugmyndafræðin byggir á gildi umburðarlyndis og jafnræðis þar sem áhersla er á að virkja þátttöku, ánægju, einstaklingsmiðaða færni og ekki síst vináttu. Þannig er humyndafræði Special Olympics gjörólík hinum pýramídamiðaða íþróttaheimi afreksíþrótta. Allar upplýsingar um leikana má finna á www.specialolympics.org og www.la2015.org