
Á morgun fer fram opnunarhátíð Vetrarólympíumóts fatlaðra í Sochi. Ísland verður það sextánda í röðinni af þjóðunum sem ganga munu inn á Ólympíumótsleikvanginn í innmarseringu keppnislandanna. Opnunarhátíðin hefst kl. 20:00 að staðartíma eða kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður sýnt í beinni hjá RÚV frá opnuninni.
„Þetta er æðislegt, hef séð ýmsar aðstæður en snjórinn í brekkunum er nokkuð mjúkur og blautur. Það er langt í keppnina hjá okkur og það getur ýmislegt breyst á meðan en þessi fyrsta æfing var góð byrjun fyrir framhaldið,“ sagði Jóhann Þór Hólmgrímsson eftir æfinguna í morgun en hann keppir í svigi og stórsvigi á mótinu.
Mynd/ Jóhann ásamt þremur af fjöldamörgum aðstoðarmönnum sem starfa í Sochi á meðan mótinu stendur.