Íslands- og Unglingameistaramótið í 50m laug í Hafnarfirði um helgina


Íslands- og Unglingameistaramótið í 50m laug fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði dagana 27.-29. mars 2026 í samstarfi ÍF og SSÍ. Sundfélag Hafnarfjarðar er framkvæmdaraðili með Sundsambandi Íslands. Gert er ráð fyrir að keppni í morgunhlutum hefjist kl. 9:00 alla daga og í úrslitum kl. 16:30.

Streymt verður beint á nýrri streymisveitu Sundsambandsins. Nánari upplýsingar um mótið má nálgast hér.