Malmö Open fór fram í Svíþjóð um síðastliðna helgi þar sem sundmaðurinn Már Gunnarsson, NES/ÍRB, fór mikinn og setti fimm ný Íslandsmet í flokki blindra/sjónskertra. Már syndir í flokki S12 og tókst honum ytra að hreppa eitt met úr ranni Eyþórs Þrastarsonar sem var í 100m skriðsundi en mótið fór fram í 25m laug.
Íslandsmet Más í Malmö:
200 skrið 2:22,57
400 skrið 4:49,11
200 fjór 2:37,79
50 flug 33,80
100 bak 1:14,01
100 skrið 1:05,05
Mynd/ Már ásamt Inga Þór Einarssyni sundþjálfara hjá Nes.