Morgunstund gefur „gull“ í mund



Það er ekki oft sem skært og glansandi gull bíður við endann á þessu gamla og góða orðatiltæki en í morgun reyndist svo vera þegar íslenski hópurinn dreif sig á fætur í Swansea til þess að sjá Helga Sveinsson taka á móti gullverðlaununum og um leið Evrópumeistaratitlinum fyrir sigur sinn í spjótkasti F42.

Helgi hafði sigur í greininni í gær og er bæði heims- og Evrópumeistari um þessar mundir.  Sigurkastið í gær reyndist 50,74 metrar. Stórglæsilegur árangur hjá Helga!

Mynd/ Jón Björn - Frá verðlaunaafhendingunni í morgun.