Í góðri trú…


Hér að neðan fer grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 20. ágúst síðastliðinn í tengslum við þátttöku Íslands í Ólympíumóti fatlaðra í London.

Í góðri trú


Ólympíumót fatlaðra fer fram í London dagana 29. ágúst til 9. september 2012 og er hluti af 45 daga samfelldri íþróttahátíð sem hefst með opnunarhátíð Ólympíuleikanna 27. júlí og lýkur með lokahátíð Ólympíumóts fatlaðra þann 9. september.  Fyrir íþróttamenn er þátttaka í Ólympíuleikum eða Ólympíumóti fatlaðra hápunkturinn á ferli hvers og eins og þátttakan í London 2012 verður þar engin undantekning.

Fjórir íslenskir íþróttamenn munu keppa á Ólympíumótinu þau Helgi Sveinsson og Matthildur Ylfa Þorsteindóttir í frjálsum íþróttum og Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir í sundi.
Ljóst er að kostnaður Íþróttasambands fatlaðra vegna undirbúnings við þátttökuna í mótinu er umtalsverður og því hefur bréf verið sent til fyrirtækja á Íslandi undir yfirskriftinni „Í góðri trú“.

Fyrsta Ólympíumót fatlaðra var haldið í Róm 1960 og síðan þá hafa mótin ávallt verið haldin sama ár og Ólympíuleikarnir.  Frá árinu 1988 hafa Ólympíumót fatlaðra verið haldin í beinu framhaldi af  Ólympíuleikunum, í sömu borg og sömu íþróttamannvirkjum og frá árinu 1992 einnig í vetraríþróttum.

Íslendingar hafa verið sigursælir á Ólympíumótum fatlaðra en þeir tóku fyrst þátt í Ólympíumótinu sem haldið var í Arnhem í Hollandi árið 1980.  Þó má segja að  uppgangur íþrótta fatlaðra hér á landi hafi fyrir alvöru hafist 1988 í Seoul í Suður-Kóreu þar sem Ísland vann til tveggja gullverðlauna á mótinu.  Frá 1980 hafa fatlaðir íslenskir íþróttamenn unnið til 97 verðlauna á Ólympíumótum fatlaðra og af þessum verðlaunum eru 36 gullverðlaun.  Þá hafa Íslendingar unnið 66 verðlaun á Heimsmeistaramótum fatlaðra og 73 verðlaun á Evrópumeistaramótum – ekki slæmur árangur það!

Nú þegar lokaundirbúningur stendur sem hæst langar íslensku keppendurna að leita eftir styrk frá þessum fyrirtækjum að upphæð 5.000,- kr. eða því sem nemur 1250,- kr. á hvern keppanda. Um leið og greitt er fyrir hinn valfrjálsa greiðsluseðil öðlast viðkomandi fyrirtæki hlutdeild í afrekum þessa mikla íþróttafólks. Fatlaðir íslenskir íþróttamenn hafa á undanliðnum árum vakið aðdáun og eftirtekt vegna framgöngu sinnar á stórmótum erlendis.

Ólympíumótið í London er hið fjórtánda í röðinni og til þess að öðlast þátttökurétt á Ólympíumóti fatlaðra þurfa keppendur að ná þeim lágmörkum sem tilskilin eru af hálfu mótshaldara. Einungis þeir íþróttamenn sem staðist hafa ströng alþjóðleg lágmörk öðlast þátttökurétt. Því keppir aðeins besta íþróttafólk heimsins úr röðum fatlaðra á Ólympíumótunum.

Þá er öllum þeim sem ekki fá greiðsluseðlana senda í pósti frjálst að leggja þessu öfluga íþróttafólki lið með frjálsum framlögum á neðangreindum reikningi.

Bankanúmer.
0313-26-4396
kt: 620579-0259

Í London gerum við okkar besta og treystum á stuðning þinn!

Virðingarfyllst,
Ólafur Magnússon
Aðalfararstjóri Ólympíuhóps fatlaðra